Hótel Reykjahlíð selt

Sumar í Reykjahlíð í Mývatnssveit.
Sumar í Reykjahlíð í Mývatnssveit. mbl.is/Birkir Fanndal

Hótel Reykjahlíð í Mývatnssveit hefur verið selt. Kaupandi er Reynihlíð hf. sem er í eigu hjónanna Péturs Snæbjörnssonar og Ernu Þórarinsdóttur.

Hótel Reykjahlíð verður rekið sem sjálfstæð eining innan samstæðu Reynihlíðar hf. sem fyrir rekur Hótel Reynihlíð og veitingastaðinn Gamla Bistro.

Eftir samrunann hefur Reynihlíð hf. yfir að ráða 50 herbergjum fyrir samtals 100 manns og tilheyrandi veitingastarfsemi fyrir allt að 300 manns í einu. Gerðar verða endurbætur á Hótel Reykjahlíð og verður hótelið lokað meðan á þeim stendur en stefnt er að því að opna í júní. Þangað til tekur Hótel Reynihlíð við öllum gestum Hótels Reykjahlíðar, segir í tilkynningu.

Jafnframt hyggur Reynihlíð hf. á sókn með nýrri stöðu sölu- og markaðsstjóra. Við því starfi tekur Margrét Hólm Valsdóttir viðskipta- og ferðamálafræðingur. Hún hefur áralanga reynslu af störfum í ferðaþjónustu, meðal annars hjá Reynihlíð hf., og segist Pétur Snæbjörnsson, framkvæmdastjóri Reynihlíðar hf., vænta mikils af nýju fyrirkomulagi markaðsmála hjá fyrirtækinu, samhliða stækkun þess.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Loka