Farice ehf hefur í dag sagt upp samningum sínum við Símann og Vodafone frá og með október á þessu ári. Viðræður standa yfir og vonast Farice til að þeim ljúki fljótlega.
Þetta kemur fram í tilkynningu sem send var inn til Kauphallarinnar í dag. Engar nánari skýringar eru settar fram í tilkynningunni.