Atvinnuleysi mældist 8,2% í Bandaríkjunum í júní og er það sama hlutfall og í maímánuði. Alls urðu til rúmlega 80 þúsund ný störf í landinu í júní og er þetta þriðji mánuðurinn í röð þar sem störfum fjölgar lítið.
Samkvæmt tölum frá vinnumálastofnun urðu öll störfin til í einkageiranum, alls 84 þúsund talsins. Á sama tíma eykst niðurskurður hjá hinu opinbera. Eru þetta færri störf heldur en væntingar voru um en að meðaltali spáðu sérfræðingar því að 100 þúsund ný störf yrðu til í júní.