Samdráttur í efnahagslífi Bretlands á öðrum ársfjórðungi var 0,7% og nokkuð verri en markaðurinn hafði gert ráð fyrir. „Við vitum öll að Bretland er í djúpum efnahags vandræðum og þessar vonsvíkjandi tölur staðfesta það“ sagði George Osborne fjármálaráðherra Bretlands.
Þetta er þriðji ársfjórðungurinn í röð sem tölur sína fram á samdrátt, en áður hafði samdrátturinn verið 0,4% á síðasta ársfjórðungi 2011 og 0,3% á þeim fyrsta 2012. Gert hafði verið ráð fyrir 0,3% samdrætti í þetta skiptið, en höggið var mun þyngra. Fréttirnar koma aðeins 2 dögum áður en Ólympíuleikarnir verða settir í London, en gert er ráð fyrir að leikarnir hafi jákvæð áhrif á hagvöxtinn og að jákvæðar tölur muni sjást á þriðja fjórðungi.