Seðlabankastjóri Evrópu, Mario Draghi, lýsti því yfir af miklum þunga að evrópski seðlabankinn myndi aðstoða til við skuldavanda evruríkjanna af fullum krafti. Opnaði hann þar með fyrir að bankinn myndi á næstunni aftur byrja að kaupa upp evrópsk ríkisskuldabréf eða hafa bein áhrif á annan hátt. Markaðir í Evrópu og Bandaríkjunum hafa tekið mjög jákvætt í fréttirnar og hækkuðu allar helstu hlutabréfavísitölur beggja vegna Atlantshafsins.
Á ráðstefnu sem ríkisstjórn Bretlands hélt í London í dag sagði Draghi að „evrópski seðlabankinn væri tilbúinn að gera hvað sem er til að vernda evruna“ og tók þar af öll tvímæli um afstöðu bankans til aðgerða í skuldakrísunni. Draghi sagði evruna vera komna til að vera og að það væri innan verkahring bankans að halda skuldaáhættu ríkjanna niðri.
Í kjölfar ummæla Draghi lækkuðu vextir á spænskum langtímaskuldabréfum niður fyrir 7%, en miklar áhyggjur höfðu komið upp þegar bréfin fóru yfir 7% múrinn í síðustu viku. Hlutabréf tóku einnig mikinn kipp og fóru bréf bæði á Spáni og Ítalíu strax upp um 5%. Við lokun markaða hafði FTSE 100 í London farið upp um 1,36%, DAX í Frankfurt um 2,75%, CAC 40 í París upp um 4,07%, FTSE í Mílan upp um 5,62% og IBEX 35 í Madrid fór upp um heil 6,06%. Evran styrktist einnig nokkuð og fór upp um rúmlega 1%
„Ummæli seðlabankastjóra Evrópu, Mario Draghi virðast hafa verið aðalástæða hækkana á markaði,“ sagði Michael Hewson greiningaaðili hjá CMC Markets í viðtali við AFP fréttastofuna. Bætti hann við að það liti út fyrir að „seðlabankinn muni gera eitthvað til að lækka vexti ríkisskuldabréfa. Öll athygli verður núna á vaxtaákvörðunarfundi seðlabankans í næstu viku til að sjá hvort Draghi sé alvara“. Hlutabréf í Bandaríkjunum hækkuðu einnig í dag, en hækkunin hefur verið nokkru minni en í Evrópu.