Seðlabankinn virðist hafa tilhneigingu til að vanspá hagvexti í eins og tveggja ára spám sínum, en virðist að sama skapi vera nokkuð hittinn á leitni hagvaxtar og sjá fyrir upp- og niðursveiflur. Þetta kemur fram í markaðspunktum Arion banka, en þar eru allar spár peningamála síðasta áratuginn skoðaðar.
Segir greiningardeildin að bankanum hafi „tekist að hitta nokkuð vel á leitnina í þjóðarbúskapnum, bæði fjóra og átta fjórðunga fram í tímann, þótt tvenn stór frávik megi greina frá 2006; greinilega vanspá annars vegar hagvaxtar 2007 og hins vegar of- og vanspá samdráttar 2009“. Bent er á að sama tilhneiging eigi við um verðbólguspá Seðlabankans sem oft sé einnig vanáætluð. Þess ber þó að geta að Seðlabankinn má ekki gera ráð fyrir stórum fjárfestingum í spám sínum fyrr en þær hafa verið samþykktar endanlega og hefur þurft að stíga varlega til jarðar varðandi mat á launabreytingu. Þetta getur haft töluverð áhrif á niðurstöðu spálíkananna, auk þess sem forsendan um óbreytt gengi litar iðulega útkomuna.