Bandaríska bílaleigan Hertz er að kaupa keppinautinn Dollar Thrifty á 2,3 milljarða Bandaríkjadala, 278 milljarða króna.
Í tilkynningu frá bílaleigunum kemur fram að stjórnir beggja félaga hafi samþykkt yfirtökuna. Hertz mun greiða hluthöfum Dollar Thrifty 87,50 Bandaríkjadali á hlut í peningum.