Síldarvinnslan kaupir Berg-Hugin

Síldarvinnslan
Síldarvinnslan mbl.is/Steinunn Ásmundsdóttir

Síldarvinnslan hf. í Neskaupstað (SVN) hefur undirritað kaupsamning um kaup á öllu hlutafé í útgerðarfélaginu Bergi-Hugin ehf. (BH) í Vestmannaeyjum. Seljandi er hlutafélag í eigu Magnúsar Kristinssonar útgerðarmanns og fjölskyldu. Kaupverð er trúnaðarmál milli kaupanda og seljenda.

Bergur-Huginn gerir út tvo nýlega togara, Bergey VE-544 og Vestmannaey VE-444. Bæði skipin eru 29 metra löng og voru smíðuð fyrir útgerðina í Póllandi á árunum 2006 og 2007. Hjá félaginu starfa 35 manns. Bergur-Huginn rekur ekki landvinnslu og hefur stærsti hluti aflans farið á markað erlendis.

Með þessum kaupum eykur Síldarvinnslan aflaheimildir sínar í bolfiski umtalsvert, samkvæmt fréttatilkynningu.

Stefnt að því að fækka skipum um eitt

„Eftir þessi kaup hefur SVN yfir fjórum skipum að ráða til bolfiskveiða en ljóst er að þeim verður fækkað um eitt í hagræðingarskyni. Þá mun reksturinn allur verða endurskipulagður en stefnt er að því að gera bæði út frá Vestmanneyjum og Neskaupstað,“ segir í tilkynningu.

Höfuðstöðvar Síldarvinnslunnar eru í Neskaupstað, þar sem rekin er fiskmjölsverksmiðja og fiskiðjuver. Fyrirtækið rekur einnig fiskmjölsverksmiðjur á Seyðisfirði og í Helguvík. Þá tekur SVN þátt í rekstri fóðurverksmiðju á Akureyri og tengist útgerð á Akranesi.

Samanlagðar aflaheimildir 10 þúsund tonn í bolfiski

Aflaheimildir sem Bergur-Huginn hefur yfir að ráða nema um 5.000 þorskígildistonnum á yfirstandandi fiskveiðiári. Heimildirnar eru eingöngu bolfiskur. Samanlagðar aflaheimildir beggja félaga nema um 10.000 þorskígildistonnum í bolfiski.

Taka yfir töluverðar skuldir

Gunnþór Ingvason, framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar, segir í tilkynningu að með þessum kaupum sé Síldarvinnslan að styrkja stöðu sína í bolfiski. 

„Við  skjótum þar með styrkari stoðum undir rekstur félagsins. Við þessi kaup tökum við yfir umtalsverðar skuldir en með hagræðingu teljum við að þær verði viðráðanlegar. Við munum nota þetta tækifæri til að endurskipuleggja reksturinn með það að markmiði að tryggja að útgerðin geti áfram skilað hagnaði.

Bergur-Huginn verður rekið sem sjálfstætt félag. Við munum nota næstu mánuði til að skipuleggja þær breytingar sem ráðast þarf í og reyna að ljúka því verki ekki síðar en um áramótin. Öll óvissa í þessum efnum er óþægileg, ekki síst fyrir starfsfólkið, og því mikilvægt að henni ljúki svo fljótt sem kostur er.“

Kaupsamningurinn er undirritaður með fyrirvara um samþykki samkeppniseftirlitsins.

Magnús Kristinsson og fjölskylda hans hafa selt Síldarvinnslunni útgerðarfélag sitt …
Magnús Kristinsson og fjölskylda hans hafa selt Síldarvinnslunni útgerðarfélag sitt í Vestmannaeyjum, Berg-Hugin. mbl.is/Rax
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK