Flugvél frá WOW air hóf sig á flug í fyrsta skipti frá Akureyri í morgun, en flugfélagið flaug með hóp nemenda frá Menntaskólanum á Akureyri sem héldu til Alicante í útskriftarferð. WOW air hefur tilkynnt fleiri slíkar ferðir í vetur, en nú þegar hafa ýmsir hópar pantað flug fyrir árshátíðir og aðrar hópferðir.
Segir í tilkynningu frá félaginu að vonast sé til að styttur ferðatími muni njóta vinsælda meðal íbúa Norðurlands sem með þessu komist beint til áfangastaða WOW air í Evrópu.