Það lítur út fyrir að verðbólgan verði búin að éta upp alla þá launahækkun sem varð af 7% kjarasamningsbundinni hækkun í júní í fyrra, að því er fram kemur í morgunkorni greiningardeildar Íslandsbanka. Segir þar að ljóst sé að mikill þrýstingur verði á aukna samningsbundna launahækkun í janúar þegar opnað verður fyrir endurskoðun samninganna þar sem kaupmáttur hefur lækkað nokkuð síðasta árið.
Segir greiningardeildin að ólíklegt sé að skilyrði núverandi samninga verði uppfyllt. „Núverandi samningar hljóða upp á 3,25% hækkun launa á fyrsta fjórðungi næsta árs, en sett eru skilyrði um að verðbólga verði við 2,5% markmið Seðlabankans, gengi krónu verði u.þ.b. 16% sterkara en raunin er nú og að kaupmáttur hafi aukist yfir þetta ár. Hverfandi líkur eru á að þessi skilyrði verði uppfyllt um áramótin.“
Samkvæmt launavísitölu Hagstofu Íslands hafa laun lítið breyst í sumar. Þannig hækkuðu laun um 0,1% í ágúst frá fyrri mánuði og kemur þessi lítilsháttar hækkun nú í kjölfar þess að laun hækkuðu einnig um 0,1% í júlí og óbreytts ástands í júnímánuði. Þróunin undanfarna mánuði virðist því benda til þess að launaskrið sé afar lítið um þessar mundir, en engar kjarasamningsbundnar hækkanir eru í sjónmáli fyrr en í febrúar og mars á næsta ári.