Ragnhildur færir sig til Landsbankans

Ragnhildur Geirsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Rekstrar- og upplýsingatæknisviðs hjá …
Ragnhildur Geirsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Rekstrar- og upplýsingatæknisviðs hjá Landsbankanum Landsbankinn

Ragnhildur Geirsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Rekstrar- og upplýsingatæknisviðs hjá Landsbankanum og tekur strax til starfa. Framkvæmdastjórar bankans eru því sjö, fjórar konur og þrír karlar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum, en Ragnhildur hefur meðal annars áður verið forstjóri Promens og Icelandair.

Tilkynnt var um stofnun Rekstrar- og upplýsingatæknisviðs Landsbankans 27. september samhliða öðrum viðamiklum skipulagsbreytingum. Hið nýja svið hefur með höndum rekstur, viðhald og þróun á öllum tölvu- og upplýsingakerfum bankans, rekstur og umsjón með fasteignum og lána- og viðskiptaumsjón auk þess að sjá um fullnustueignir bankans. Á sviðinu starfa um 350 manns.

Jafnframt því að veita forstöðu Rekstrar- og upplýsingatæknisviði mun Ragnhildur stýra hagræðingarverkefnum sem ganga þvert á bankann og eru hluti af helstu áherslum í starfsemi hans til nánustu framtíðar.

Haft er eftir Ragnhildi að hún sé spennt fyrir þeim verkefnum sem bankinn stendur fyrir, svo sem með að auka hagkvæmnina. „Landsbankinn hefur sett fram metnaðarfulla stefnu og háleit markmið til næstu ára. Ég hlakka til að vinna með þeim öfluga hópi starfsmanna og stjórnenda sem bankinn hefur á að skipa við að framfylgja stefnu bankans, m.a. með því að auka hagkvæmni í rekstri.“

Ragnhildur Geirsdóttir hefur komið víða við í íslensku atvinnulífi og hefur mikla stjórnunarreynslu. Hún var forstjóri Promens hf. frá 2005 – 2011 og var í forystusveit Icelandair hf. til margra ára, síðast sem forstjóri félagsins árið 2005. Ragnhildur hefur setið í stjórnum fjölmargra félaga, til að mynda Landsbréfa hf., Skeljungs hf., Horns Fjárfestingafélags hf., Icelandair Group, Kauphallarinnar á Íslandi og margra fleiri. Samfara ráðningunni hættir Ragnhildur í þeim stjórnum sem hún nú situr í.

Ragnhildur er vélaverkfræðingur frá Háskóla Íslands og lauk framhaldsnámi í iðnaðarverkfræði og viðskiptafræði frá University of Wisconsin í Madison í Bandaríkjunum. Hún hefur ennfremur stundað kennslu við bæði Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík. Maki Ragnhildar er Ágúst Þorbjörnsson, hagverkfræðingur og rekstrarráðgjafi og eiga þau saman tvö börn.

Alls sóttu 65 manns um starfið, 52 karlar og 13 konur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK