Anna Mjöll ráðin yfirlögfræðingur

Fjármálaeftirlitið
Fjármálaeftirlitið mbl.is/Sigurgeir

Anna Mjöll Karlsdóttir hefur verið ráðin yfirlögfræðingur hjá Fjármálaeftirlitinu, en Unnur Gunnarsdóttir, sem ráðin var forstjóri í júlí síðastliðinn, gegndi áður embættinu. Í tilkynningu á heimasíðu Fjármálaeftirlitsins kemur fram að Anna hafi langa starfsreynslu í stjórnsýslunni og í dómskerfinu, en hefur starfað hjá Fjármálaeftirlitinu frá 1. september 2010, síðast  sem aðstoðarframkvæmdastjóri eftirlitssviðs.

Staðan var auglýst 20. ágúst og var ráðningarferlið unnið í samvinnu við ráðgjafa hjá Capacent ráðningum. Anna mun taka við hinu nýja starfi hinn 5. nóvember næstkomandi. Hún hefur áður gengt tímabundið stöðu héraðsdómara við héraðsdóm Suðurnesja

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK