Nýr samningur Icelandair og Íslensku

Vél Icelandair
Vél Icelandair mbl.is

Icelandair og Íslenska auglýsingastofan hafa skrifað undir nýjan samning um áframhaldandi samstarf. Fyrirtækin hafa mörg undanfarin ár átt náið og árangursríkt samstarf á sviði markaðsmála sem hefur meðal annars alið af sér fjölda auglýsingaverðlauna og íslensku markaðsverðlaunin fyrir markaðsfyrirtæki ársins og markaðsmann ársins.

Í tilkynningu frá Icelandair kemur fram að samningurinn taki til markaðsstarf hér á íslenska markaðinum, en ekki síður til hins umfangsmikla markaðs- og auglýsingastarfs Icelandair á erlendum neytendamörkuðum í Evrópu, Norður-Ameríku og ýmsum fjarlægari löndum.

„Icelandair er eitt öflugasta markaðsfyrirtæki landsins,“ segir Hjalti Jónsson, framkvæmdastjóri Íslensku. „Sterk sýn á markaðsmál, stefnumótun og skýr markmiðasetning hefur gert það að verkum að samstarf okkar við Icelandair hefur verið mjög farsælt og skapandi.“

Frá undirritun nýs samnings
Frá undirritun nýs samnings Sigurður Anton
Efnisorð: Icelandair
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK