Tækniþróunarsjóður hefur ákveðið að bjóða 30 fyrirtækjum að ganga til samninga vegna verkefna sem eru í vinnslu og sótt var um styrk til sjóðsins vegna. Þetta kemur fram í tilkynningu á heimasíðu sjóðsins, en alls bárust 87 umsóknir.
Tækniþróunarsjóður hefur samkvæmt fjárlögum 2011 yfir að ráða 725 milljónum til að styrkja nýsköpunarverkefni, en þetta var seinni úthlutun ársins 2012. Næsti umsóknarfrestur er í febrúar 2013.
Sjá má lista yfir þau verkefni sem fengu úthlutun í meðfylgjandi skjali.