Cintamani með landvinninga í Kanada

Verslun Cintamani í Fredericton
Verslun Cintamani í Fredericton Cintamani

Nýlega var opnuð verslun undir merkjum Cintamani í Fredericton í fylkinu New Brunswick í Kanada. Að sögn Dagnýjar Guðmundsdóttur, forstjóra fyrirtækisins, hefur vinna við opnun verslunarinnar staðið yfir í um 1 ár, en hún á að vera með svipuðu sniði og verslunin sem nú þegar er rekin í Smáralind. 

Dagný segir að komið hafi verið með hugmyndina til þeirra og að litið hafi verið á þetta sem áhugavert tækifæri til að kanna markaðinn í Kanada. Það hafi svo verið gerður dreifisamningur sem nái til alls Kanada. 

Spurð um viðtökurnar segir Dagný að þær hafi verið mjög góðar þennan fyrsta mánuð sem verslunin hefur verið rekin. Fyrir áhugasama er verslunin í Regent-verslunarmiðstöðinni í Fredericton, en það er einmitt höfuðborg New Brunswick-fylkisins og helsti háskólabær svæðisins.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK