Taka þátt í olíuleit á Drekasvæðinu

AFP

Orkustofnun hefur ákveðið að veita félögunum Faroe Petroleum Norge AS  og Íslensku kolvetni ehf. annars vegar og Valiant Petroleum ehf. og Kolvetni ehf. hins vegar, sérleyfi fyrir rannsóknir og vinnslu kolvetnis (olíu og gass) á Drekasvæðinu. Jafnframt hafa norsk stjórnvöld, með bréfi dagsettu 3. desember, ákveðið að norska ríkisolíufélagið Petoro verði þátttakandi í báðum leyfunum, að fjórðungs hlut í hvoru leyfi fyrir sig eins og samningur Íslands og Noregs frá árinu 1981 heimilar þeim.

Þetta kemur fram í frétt á vef atvinnu- og nýsköpunarráðuneytisins.

„Þátttaka Noregs í sérleyfum á Drekasvæðinu er  mjög jákvæð fyrir framhald olíuleitar á Jan Mayen-svæðinu í heild enda undirstrikar hún trú Norðmanna á því hversu raunhæft verkefni hér er um að ræða. Þátttaka Norðmanna í sérleyfum gerir rannsóknir á Drekasvæðinu eftirsóknarverðari og dregur athygli olíufélaga að Íslandi sem fýsilegum kosti til rannsókna og eftir atvikum vinnslu olíu frá svæðinu til lengri tíma litið,“ segir í frétt ráðuneytisins.

Steingrímur J. Sigfússon, atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra, fagnar aðkomu Norðmanna. „Að mínu mati er augljóslega mikill styrkur að hafa Norðmenn sér við hlið í verkefnunum á Drekasvæðinu. Það gefur þeim aukið vægi og trúverðugleika. Noregur býr yfir mikilli reynslu á þessu sviði og þá ekki síst í umhverfismálum enda eru þeir þekktir fyrir að gera ströngustu kröfur í öryggis- og umhverfismálum í tengslum við olíu- og gasvinnslu á hafi úti,“ er haft eftir Steingrími í fréttinni.

Þrjár umsóknir bárust í útboði vegna sérleyfa sem lauk 2. apríl. Við úthlutun sérleyfanna leitaði Orkustofnun umsagna í samræmi við ákvæði laga og kannaði ítarlega getu umsækjenda til að takast á við þá umfangsmiklu starfsemi sem í leyfisveitingunni felst. Niðurstaða Orkustofnunar var sú að veita annars vegar Faroe Petroleum Norge AS  og Íslensku kolvetni ehf. og hins vegar Valiant Petroleum ehf og Kolvetni ehf. sérleyfi fyrir rannsóknir og vinnslu kolvetnis (olíu og gass) á Drekasvæðinu. Þá fékk þriðji umsækjandinn, Eykon ehf., frest til 1. maí 2013 til að afla sér samstarfsaðila sem hefði að mati Orkustofnunar nægjanlega sérþekkingu, reynslu og bolmagn til að annast þá starfsemi sem í leyfisveitingunni felst.

Áður en sérleyfin verða gefin út þarf norska stórþingið að samþykkja þátttöku norska ríkisins í verkefninu. Í kjölfar þess og þegar aðilar sérleyfanna hafa undirritað samstarfsamninga sína um verkefnin mun Orkustofnun gefa út umrædd leyfi, væntanlega í byrjun janúar á næsta ári.

Drekasvæðið.
Drekasvæðið. mbl.is/KG
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK