Íslenska hugbúnaðarfyrirtækið Cloud Engineering hefur verið valið af Viðskiptaháskólanum í Kaupmannahöfn til þátttöku í verkefni sem leiðir saman ný vaxtarfyrirtæki og MBA-nemendur. Næstu sex mánuðina munu fjórir MBA-nemar ásamt kennara við háskólann sitja í ráðgjafastjórn fyrirtækisins og leiðbeina stjórnendum við stefnumótun og framtíðasýn félagsins, ásamt undirbúningi fyrir vöxt og sókn þess á nýja markaði.
Cloud Engineering er umboðsaðili Salesforce-hugbúnaðarins á Íslandi og vinnur nú að þróun á hugbúnaðinum Datatracker sem nýlega var boðið til samninga vegna úthlutunar verkefnastyrks frá Tækniþróunarsjóði. Í haust var fyrirtækið einnig kosið „Best Enterprise Startup“ á Artic15 ráðstefnunni í Helsinki fyrir þann hugbúnað.
„Viðskiptaháskólinn í Kaupmannahöfn er mjög virtur háskóli og þarna koma framhaldsnemar alls staðar að úr heiminum, margir með víðtæka reynslu í atvinnurekstri sem nýtist okkur vel á meðan við erum að vaxa og sækja á nýja markaði,“ segir Ragnar Fjölnisson, þróunarstjóri og einn af stofnendum Cloud Engineering.