FME gerir athugasemdir við Lífeyrissjóð bankamanna

Morgunblaðið/Ómar

Fjármálaeftirlitið hefur gert nokkrar athugasemdir við starfsemi hjá Lífeyrissjóði bankamanna. Gagnrýnt er að formfesta við framkvæmd fjárfestinga sé ekki nógu góð og að reglur um upplýsingagjöf framkvæmdastjóra til stjórnar séu ekki fullnægjandi.

Gerð er athugasemd við að framkvæmdastjóri hafði engar heimildir til fjárfestinga fyrir sjóðinn þar sem framkvæmdin virðist önnur miðað við gögn Fjármálaeftirlitsins. Gerir eftirlitið þá kröfu að heimildir framkvæmdastjóra endurspeglist í regluverki sjóðsins.

Þá segir að ósamræmi sé í skjali lífeyrissjóðsins um fjárfestingaferli, í kaflanum um stjórnendaeftirlit er vísað í reglur um upplýsingagjöf framkvæmdastjóra til stjórnar en þær reglur eru ekki fyrir hendi hjá sjóðnum.

Að lokum var gerð athugasemd við að skjölun verkferils við lánveitingar sé ábótavant. Samkvæmt starfsreglum framkvæmdastjóra veitir hann sjóðfélagalán en framkvæmdin er sú að framkvæmdastjóri veitir aðeins lán að uppfylltum skilyrðum sem orðið hafa til við venjur milli stjórnar og framkvæmdastjóra.

Gerð var athugasemd við að Lífeyrissjóður bankamanna hefði hvorki farið eftir eigin starfsreglum né ákvæðum um hæfi stjórnarmanna í lífeyrissjóðalögum og stjórnsýslulögum á tímabilinu 2007-2011. Í nokkrum tilvikum sat stjórnarmaður fundi þar sem tekið var fyrir mál tengt fyrirtæki þar sem hann starfaði sem framkvæmdastjóri.

Lífeyrissjóður bankamanna hefur birt yfirlýsingu um þessar athugasemdir FME. Bent er á að sjóðurinn standi vel. „Sterkasti mælikvarðinn á gæði starfs sjóðsins er þó ávallt ávöxtun hans sem hefur verið með ágætum, jafnvel við þær erfiðu aðstæður sem komu upp á árinu 2008.  Meðalraunávöxtun síðustu 10 ára var 3,86% fyrir aldursdeild sjóðsins og 3,98% fyrir hlutfallsdeild.“

Sjóðurinn segir að engin tilvik sé unnt að nefna um að meint formfestuleysi hafi leitt til fjárfestinga sem urðu sjóðnum til tjóns. Það sé kjarni máls. Fyrir liggi að engin fjárfesting er gerð nema með vilja og vitund stjórnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK