Mannvit styrkt vegna græns verkefnis

Mannvit merki
Mannvit merki

Verkfræðifyrirtækið Mannvit hefur hlotið 40 milljón evra styrk vegna jarðvarmaverkefnis í Ungverjalandi. Er þetta einn af 23 styrkjum sem hljóta styrki vegna NER300 áætlunar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um græn orkuverkefni. Markmið verkefnisins er að örva jarðvarmakerfi til raforkuframleiðslu í suðausturhluta Ungverjalands. Ráðgert er að vinna verkefnið á næstu árum í nánu samstarfi sérfræðinga á sviði verkfræði og jarðvísinda í Ungverjalandi og á Íslandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Mannvit.

Framlag ESB til verkefnis Mannvits í Ungverjalandi nemur um 40% af heildarkostnaði verksins sem er áætlaður ríflega 100 milljónir evra. Verkefnið hefur verið þróað í samstarfi við ungverska fyrirtækið EU-FIRE og þróunarráðuneyti Ungverjalands sem valdi verkefnið til að taka þátt í NER300 ferlinu. Í þessu ferli hefur Mannvit gegnt forystuhlutverki gagnvart Evrópusambandinu og stofnunum þess.

Í tilkynningunni segir að afgreiðsla NER300 sjóðsins sé mikilvægur áfangasigur fyrir þróun starfsemi Mannvits í Ungverjalandi sem hefur rekið dótturfélag í Búdapest frá árinu 2007. Undanfarin ár hefur Mannvit átt í sívaxandi samstarfi við fyrirtæki, sveitarfélög og stjórnvöld í ríkjum Mið- og Austur-Evrópu um fjölþætta n ýtingu jarðvarma til húshitunar, iðnaðar og rafmagnsframleiðslu. Um þessar mundir vinnur Mannvit að þróun rúmlega 10 jarðvarmaverkefna á svæðinu sem eru á mismunandi stigum, allt frá hugmynda- og hagkvæmnigreiningu að undirbúningi framkvæmda.

Efnisorð: Mannvit
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK