Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, hlaut Viðskiptaverðlaun Viðskiptablaðsins árið 2012, að því er fram kemur í áramótatímariti blaðsins. Sagt er Icelandair Group sé ákveðin táknmynd um endurreisn íslenskra fyrirtækja eftir hrun og að nýleg viljayfirlýsing um kaup á tólf Boeing flugvélum styrki félagið til lengri tíma.
Í tímaritinu ræðir hann um áhrif kaupanna á rekstur félagsins, launakjör stjórnenda, samkeppnina á flugmarkaði og símtalið sem hann fékk með atvinnutilboðinu þegar hann var á svartfuglsveiðum austur á fjörðum. Björgólfur var einnig valinn viðskiptamaður ársins hjá Markaðinum, fylgiriti Fréttablaðsins um efnahagsmál.