Panta 60 Boeing 737 vélar

Boeing seldi í dag 60 vélar af gerðinni 737 MAX, …
Boeing seldi í dag 60 vélar af gerðinni 737 MAX, en áður hafði Icelandair meðal annars pantað 12 stykki.

Bandaríski flugvélaframleiðandinn Boeing hefur tilkynnt um sölu á 60 nýjum 737 MAX þotum til flugvélaleigufyrirtækisins Aviation Capital Group. Heildarupphæð sölunnar er 6 milljarðar Bandaríkjadollara á listaverði, en það eru um 780 milljarðar íslenskra króna. 

Með þessari sölu nær Boeing því markmiði að ná að selja 1000 vélar af nýju 737 MAX línunni. Icelandair tilkynnti í byrjun desember um kaup á 12 vélum sömu tegundar fyrir 180 milljarða króna.

Efnisorð: flug
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK