Bandaríski prófessorinn Philip Kotler mun halda námskeið í Háskólabíói þann 24. apríl en Kotler er einn þekktasti fræðimaður á sviði markaðsfræða í heiminum.
Það er Iceland Business Forum, sem er samstarfsverkefni Kotler Impact og íslenska fyrirtækisins KNÞ, sem stendur fyrir námskeiðinu, segir í tilkynningu.
Fyrirlesturinn ber nafnið ,,Marketing 3.0 - Values Driven Marketing" og fjallar um það hvernig markaðsfræðin tekst á við þær miklu breytingar sem orðið hafa og eru að verða á umhverfi neytenda. Viðskiptavinir eru orðnir svo miklu meira en neytendur, þeir eru flóknar og margvíðar manneskjur og markaðsfræðin þarf að svala þörf þeirra fyrir þátttöku, sköpunargáfu og hugmyndafræði. Á öld viðskiptavina sem eru mjög meðvitaðir þurfa fyrirtæki að sýna fram á mikilvægi sitt í tengslum við grunngildi þessara sömu viðskiptavina, segir ennfremur í tilkynningu.
„Philip Kotler er prófessor í alþjóða markaðsfræði við Kellogg School of Management, Northwestern University í Evanston, Illinois. Hann er höfundur Marketing Management: Analysis, Planning, Implementation and Control, mest notuðu markaðsfræðibókar í framhaldsnámi í viðskiptafræði í heiminum. Hann skrifaði einnig Principles of Marketing og Marketing Models, svo nokkur dæmi séu nefnd.
Hann hefur birt fleiri en hundrað greinar í leiðandi tímaritum og hafa þó nokkrar þeirra hlotið verðlaun. Kotler var sá fyrsti sem hlaut verðlaun Félags markaðsfræðinga í Bandaríkjunum (AMA) sem „framúrskarandi fræðari ársins í markaðsfræðum“ árið 1985 og árið 1995 var hann útnefndur „Markaðsmaður ársins“ af Alþjóðasamtökum stjórnenda í sölu og markaðssetningu (SMEI),“ segir í tilkynningu.