Bjarni Ármannsson fjárfestir keypti rúmlega 40% hlut í Keldunni fyrir 20 milljónir króna. Hann keypti bréfin í hlutafjáraukningu í sumar.
Fram kom í Morgunblaðinu í síðustu viku að Bjarni hefði keypt hlutinn. Fram kemur í gögnum til Hlutafélagaskrár að hlutafjáraukningin hafi numið 30 milljónum króna en tveir hluthafar breyttu 10 milljóna króna kröfu á félagið í hlutafé.
Halldór Friðrik Þorsteinsson, stofnandi Hf. Verðbréfa, lánaði félaginu níu milljónir sumarið 2011 og Gunnar Halldór Sverrisson, sem stýrir Íslenskum aðalverktökum, eina milljón veturinn 2011. Jónas Fr. Jónsson, fyrrverandi forstjóri Fjármálaeftirlitsins, er stjórnarformaður Keldunnar.