Ný hraðþjónusta sem kallast eBOX hefur verið tekin í notkun hjá Eimskip og er ætlunin að bjóða þar með upp á hraðari og einfaldari lausnir til að flytja minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Þessar sendingar fara þannig seinastar um borð í skipin, en fyrst út hér á Íslandi.
„Skipaflutningar hafa lítið breyst á undanförnum árum eða frá gámavæðingunni á áttunda áratug síðustu aldar. Á sama tíma hafa þarfir viðskiptavina okkar þróast í áranna rás og nú finnum við að þörfin fyrir einfalda og hraða þjónustu fyrir smærri sendingar hefur verið að aukast jafnt og þétt,“ segir Matthías Matthíasson, framkvæmdastjóri sölu- og viðskiptaþjónustu hjá Eimskip, í tilkynningu frá félaginu.
Hann segir ástæðurnar meðal annars þær að aukin áhersla sé á lausnir með stuttum fyrirvara og minna lagerhald. „Það er oft hagkvæmara að panta minna í einu en oftar. Með því sparast til dæmis fjármagnkostnaður sem fyrirtæki og einstaklingar horfa í auknum mæli á. Það má segja að eBOX sé okkar leið til að mæta þessari þróun,“ segir Matthías.
Þessi nýja þjónusta var kynnt á afmælisdegi félagsins, en Eimskipafélag Íslands var stofnað 17. janúar 1914 og er því 99 ára í dag.