Framkvæmdir framundan á Keflavíkurvelli

Loftmynd af Keflavíkurflugvelli
Loftmynd af Keflavíkurflugvelli Mats Wibe Lund

Á síðasta ári fóru um 2,4 milljónir farþega um Flugstöð Leifs Eiríkssonar, en það var fjölgun um 12,7% frá árinu á undan. Þrátt fyrir aukna umferð yfir sumartímann varð mest fjölgun lendinga utan háannartíma og fjölgaði lendingum meðal annars um 17,5% í nóvember og 15,8% í desember. Áfram er gert ráð fyrir töluverðri fjölgun ferðamanna um stöðina á komandi árum og því er nauðsynlegt að horfa nokkur skref fram í tímann varðandi frekari uppbyggingu og breytingar. 

Björn Óli Hauksson starfaði frá 2008 sem forstjóri Keflavíkurflugvallar, en frá árinu 2010 hefur hann verið forstjóri Isavia, sem annast rekstur og uppbyggingu allra flugvalla á Íslandi og stýrir jafnframt flugumferð í íslenska flugstjórnarsvæðinu. Í viðtali við mbl.is ræðir hann um væntanlegar breytingar, áhrif gengissveiflna á reksturinn, fjölgun starfsmanna og lendingargjaldakerfið.

Ný flugbraut í skoðun

Norður-suður braut flugvallarins er sú braut sem er annasömust, en tæplega 70% af allri umferð um völlinn fer um hana. Björn segir þetta ekki vera neitt vandamál ennþá, það sé bæði hægt að dreifa umferð betur yfir daginn sem og árið. Þegar horft sé til lengri tíma sé þó ekki vitlaust að huga að næstu skrefum varðandi stækkun vegna aukins fjölda ferðamanna.

Í fyrra var haldinn kynningarfundur þar sem lagðar voru fram tillögur að því að gera nýja norður-suður braut sem yrði bætt við vestan megin við núverandi flugbrautir. Björn tekur fram að þar sé verið að horfa til 10 til 20 ára, en það sé þó mikilvægt að fá svona hluti inn á aðalskipulag, bæði til hagsmuna fyrir flugvöllinn og nærliggjandi sveitafélög. „Þetta er ekki á morgun eða hinn, en við við viljum tryggja að þetta sé til á skipulagi þannig að ef farþegafjöldinn sem kemur gegnum stöðina tvöfaldast þá væru allar líkur á að við myndum reyna að opna nýja braut.“

Fjárfestingar á flugstöðvarsvæðinu

Til skemmri tíma duga aftur á móti einfaldari aðgerðir að sögn Björns og nefnir hann í því samhengi að áætlað sé að ráðast í 1 til 1,5 milljarða fjárfestingar við flugstöðina til að auka nýtni hennar betur, bæta afgreiðslusvæðið og biðsvæði farþega í suðurbyggingunni. Þá sé einnig nauðsynlegt að ganga í breytingar við bifreiðastæðin og þá sérstaklega varðandi pláss fyrir rútur sem hafi verið vanmetið við síðustu breytingu.

Isavia tók í fyrra yfir rekstur bílastæðanna í kringum flugvöllinn, en áður höfðu sérstakir rekstraraðilar séð um þann þátt. Björn segir að sú ákvörðun geri allt ferlið hentugra fyrir flugvöllinn í ljósi fyrirhugaðra breytinga þannig að ekki þurfi alltaf að breyta viðskiptaforsendum á hverju ári. 

Aðspurður hvort einhverjar hugmyndir séu uppi um byggingu bílastæðahús segir Björn að slíkar hugmyndir hafi verið uppi áður fyrr. Sá kostur sé aftur á móti mjög dýr og miðað við núverandi aðstæður og þann fjölda farþega sem fara gegnum flugvöllinn í dag þá sé það ekki á teikniborðinu. Hins vegar verði fylgst með þróuninni á komandi árum með það fyrir augum hvort það verði álitlegur kostur í framtíðinni.

Gengissveiflur hafa haft áhrif

Hagnaður Isavia árið 2010 var um 2,1 milljarður og tæplega 600 milljónir í fyrra. Sá mikli munur skýrðist að miklu vegna gengissveifla, en þær geta haft töluverð áhrif í rekstri sem þessum. „Frá því að ég tók við fyrirtækinu árið 2008 hefur fyrirtækið alltaf verið í sveiflu vegna gengisins,“ segir Björn, en hann segir að það sé alltaf unnið að því að minnka þessi áhrif.

„Fyrst horfir maður á að tryggja reksturinn og svo að gengissveiflurnar hafi sem minnst áhrif á reksturinn. Það sem bjargar okkur aftur á móti er að Isavia hefur tekjur í erlendri mynt sem stefna á að vera um 6 milljarðar á næsta ári,“ segir hann. Um 3,5 milljarðar koma til vegna umsjónar með yfirflugi, en um 2,5 milljarðar í gjaldeyristekjur vegna lendingagjalda.

Segir hann að fyrirtækið hafi nú náð að byggja sig þannig upp að það eigi gjaldeyri til að verjast þessum sveiflum. „Varðandi afborganir og vexti, þá höfum við alveg nógan pening í sömu mynt og greiðslur af skuldum.“

Þegar Björn er spurður út í afkomu ársins 2012 segir hann að reksturinn hafi gengið vel og skilað afgangi en gengið sé enn aðeins stríða félaginu. „Síðasti dagurinn í árinu var ekki góður dagur með gengisskráninguna og það lítur út fyrir að við verðum með tap á því ári vegna gengissveiflna. Þetta er ekkert sem við höfum áhyggjur af þar sem við fáum inn gjaldeyri og getum greitt skuldirnar með honum.“

Fjölgun starfsfólks

 Í sumar þegar allt sumarstarfsfólkið verður komið til starfa gerir Björn ráð fyrir að heildarfjöldi starfsfólks Isavia verði um eitt þúsund. Það er töluverð aukning frá því fyrir fjórum árum, en samanlagður fjöldi starfsmanna þeirra stofnana sem sameinuðust í Isavia var um 100 til 150 færri þá. 

„Fjölgunin stafar sérstaklega af flugverndarpakkann. Þegar þú ert kominn með svona marga farþega þarf fleiri starfsmenn til að tryggja öryggið,“ segir Björn, en einnig hafa verið nokkrar tilfærslur á störfum. Segir hann að fækkað hafi verið á einhverjum stöðum en fjölgað á öðrum.

Gert er ráð fyrir að um 100 manns muni vinna að meðaltali við framkvæmdir í tengslum við flugstöðina á komandi misserum, en auk þess fleiri störf tengd viðhaldi og nýjum verkefnum, svo sem við malbikun flugbrauta segir Björn. Hann tekur þó fram að ekki sé búið að ákveða nákvæmlega hvenær ákveðnar framkvæmdir verði, en heimild sé þó komin frá stjórn fyrir nokkuð myndarlegum útgjöldum.

Vilja eiga fjármuni fyrir öllum fjárfestingum

Það vekur athygli að á síðasta ársreikningi félagsins var nokkur aukning á eigin fé félagsins. Björn segir það eiga sér eðlilegar skýringar þar sem áætlunin hafi verið að safna í sarpinn til að félagið muni eiga fyrir framkvæmdum í stað þess að auka við lántökur. „Við hægðum svolítið á okkur í fyrra með fjárfestingar vegna þess að við vorum ekki alveg vissir með það hvernig við ætluðum að framkvæma verkin. Frekar vildum við vanda vel til verka. Nú eigum við til fjármagn og allar fjárfestingarnar í ár verða greiddar með eigin fé.“

Á næstu tveimur árum er áætlað að fjárfesta fyrir um 4 milljarða, en stærsti hlutinn af því er í Keflavík fyrir um 2,7 milljarða. Auk þess er gert ráð fyrir fjárfestingum í flugleiðsögunni fyrir um 600 milljónir og 400 milljónir í innanlandsflugvöllum. Björn segir að þessu verði dreift eftir því hvað félagið eigi mikið af fjármunum, en að ekki verði eytt umfram það sem félagið eigi. „Mikið af þessu er minni verkefni þannig að við getum frestað því eftir því sem hentar“ segir hann.

Afslátturinn á að stækka kökuna

Nokkuð hefur verið rætt um lendingargjöld og það afsláttarkerfi sem Isavia býður upp á. Björn segir að með því sé verið að ýta undir fjölgun ferða og meiri umferð um völlinn. „Hugmyndin er að þetta sé notað í að stækka við kökuna,“ segir hann og bætir við að þetta sé styrkur til þeirra flugfélaga sem séu tilbúin að auka farþegaflæðið.

Afslátturinn er tvískiptur. Í fyrsta lagi er veittur afsláttur af gjöldunum þegar aukning verður á farþegastreymi á tiltekinni flugleið. Þannig hafi til dæmis orðið um 12% fjölgun ferðamanna milli ára hérlendis. Björn segir „því allar líkur á því flugfélögin hafi fengið svolítið út úr þessu“, þó að Isavia horfi mest til þess að þetta fjölgi farþegum og auki hag þess og Íslands.

Ef flugfélag ákveður svo að fljúga á nýjan áfangastað sem ekki hefur verið flogið á fær það einnig bónus. Í báðum tilfellum skiptir ekki máli hvort um er að ræða innlent eða erlent flugfélag og því fá íslensku flugfélögin þessa afslætti þegar ákveðið er að fara á nýja staði.

Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia
Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia
Flugbrautir, flugvallarsvæði, öryggissvæði og flugstöðvarsvæði skv. gildandi aðalskipulagi 2005-2025. Fengið …
Flugbrautir, flugvallarsvæði, öryggissvæði og flugstöðvarsvæði skv. gildandi aðalskipulagi 2005-2025. Fengið úr skýrslu VSÓ Ráðgjafar og Glámu Kím.
Tillaga um legu framtíðar flugbrauta. Ný norður-suður braut yrði innan …
Tillaga um legu framtíðar flugbrauta. Ný norður-suður braut yrði innan græna kassans. Ekki er um endanlega tillögu að ræða. Fengið úr skýrslu VSÓ Ráðgjafar og Glámu Kím.
Fara á í fjárfestingar á Leifsstöð á þessu ári með …
Fara á í fjárfestingar á Leifsstöð á þessu ári með það fyrir augum að auka nýtni í flugstöðinni og bæta aðstöðu farþega. Árni Sæberg
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK