Ný fiskvinnsla á Dalvík

Marúlfur ætlar að sérhæfa sig í vinnslu á Steinbít, en …
Marúlfur ætlar að sérhæfa sig í vinnslu á Steinbít, en Norðurströnd var stærsti steinbítsframleiðandi í Evrópu.

Á næstu dögum mun nýtt fiskvinnslufyrirtæki hefja starfsemi á Dalvík.  Félagið hefur fengið nafnið Marúlfur ehf. Að stofnun þess koma bæði einstaklingar og fyrirtæki í sveitafélaginu, en hluthafar verða fjórir, þar af tveir stærri eigendur. Í tilkynningu kemur fram að unnið hafi verið að stofnun fiskvinnslunnar allt frá því að ljóst var á síðasta ári að Norðurströnd ehf. yrði tekin til gjaldþrotaskipta. Norðurströnd var sérhæft vinnslufyrirtæki í steinbítsafurðum sem keypti hráefni bæði ferskt á fiskmörkuðum innanlands og heilfryst aðallega frá Noregi.

Nýja fyrirtækið mun taka upp þráðinn þar sem frá var horfið við gjaldþrot Norðurstrandar og byggja á sérhæfðri reynslu starfsfólksins og þeim viðskiptasamböndum sem til voru og enn eru til staðar. Starfsmannafjöldi nýja félagsins er áætlaður 20 til 25 fyrsta rekstrarárið og gert er ráð fyrir að öll starfsemi félagsins verði að Ránarbraut 10 þar sem Norðurströnd var áður til húsa. Starfsemi verður þó ekki að Hafnarbraut þar sem hluti starfseminnar hafði verið.

Guðmundur St. Jónsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri hins nýja félags, en hann var áður framkvæmdastjóri Norðurstrandar. Að hans sögn verður vinnslan byggð á þeirri sérstöðu sem Norðurströnd hafði skapað sér bæði í hráefniöflun og sölu afurða. Norðurströnd var ekki aðeins stærsti steinbítsframleiðandi hér á landi heldur í Evrópu. „Þeirri stöðu ætlum við okkur að halda með hinu nýja fyrirtæki“ segir Guðmundur.

Í samtali við mbl.is segir Guðmundur að þeir aðilar sem standi á bakvið reksturinn telji skynsamlegt að byrja með um 20 til 25 starfsmenn, en að markaðshorfur og sala verði að ráða til um hvort fjölgað verði hjá fyrirtækinu. Hjá Norðurströnd unnu þegar mest var um 45 manns, en undir lokin voru starfsmenn 30 til 35.

Guðmundur vonast til að ráðningum ljúki í næstu viku og vinnsla geti hafist í þar næstu viku. 

Fiskvinnsla Marúlfs á Dalvík
Fiskvinnsla Marúlfs á Dalvík
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK