Seðlabanki Íslands spáir því að olíuverð muni lækka um 3,5% á þessu ári. Þá gerir bankinn ráð fyrir að verðlag helstu útflutningsafurða Íslands verði lakara á þessu ári en gert var ráð fyrir í síðustu spá Peningamála bankans. Útlit er fyrir að álverð í Bandaríkjunum muni hækka um 5% á árinu, en það er nokkuð minna en upphafleg spá sem hljóðaði upp á 8%.
Áætlað er að verð á botnfiskafurðum lækki talsvert á þessu ári. Hins vegar er áfram útlit fyrir nokkra verðhækkun á helstu afurðum uppsjávarfisks, þannig að verð á sjávarafurðum í erlendri mynt lækki í heild um 1,8% á árinu.