Breskar ferðaskrifstofur hafa verið að skoða möguleikann á því að bjóða upp á beint leiguflug til Akureyrar næsta vetur, en um er að ræða samtals tæplega 2000 flugsæti. Þetta kemur fram í frétt á vef Vikudags.
Haft er eftir Arnheiði Jóhannsdóttur, framkvæmdastjóra Markaðsstofu Norðurlands, að skipulögð markaðssetning sé greinilega að skila sér og að þetta geti verið fyrsta skrefið í frekari fjölgun í framtíðinni.