Valitor flytur höfuðstöðvarnar til Hafnarfjarðar

Nýja húsnæði Valitors er við gatnamót Fjarðarhrauns og Reykjavíkurvegar
Nýja húsnæði Valitors er við gatnamót Fjarðarhrauns og Reykjavíkurvegar Mynd/Árni Torfason

Greiðslulausnafyrirtækið Valitor mun flytja höfuðstöðvar sínar frá Reykjavík til Hafnarfjarðar í haust. Valitor og Reitir fasteignafélag hafa í þessu skyni undirritað langtíma leigusamning um rúmlega 3.500 fm húsnæði við Dalshraun 3 í Hafnarfirði. Um er að ræða þrjár efstu hæðirnar í þessari nýbyggingu sem mun hýsa nýjar höfuðstöðvar Valitor hér á landi í framtíðinni. Núverandi höfuðstöðvar eru á Laugavegi 77 en auk þess rekur fyrirtækið starfsstöð í Danmörku og opnar á næstunni skrifstofu í London. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu, en starfsmenn Valitor eru um 160 talsins.

Í tilkynningunni segir að umsvif Valitor hafa aukist verulega á síðustu árum og að nýtt aðsetur sé sniðið að nýjum áherslum í þjónustu og vöruþróun Valitors. Byggingin stendur við hlið Actavis hússins við fjölfarin gatnamót en báðar þessar eignir eru í eignasafni Reita. Á næstu mánuðum munu Reitir fullklára húsið og laga að þörfum Valitor. Sú byggingarframkvæmd er ein sú umfangsmesta sem vitað er um að ráðist verði í á þessu svæði næstu misserin.

Guðjón Auðunsson, forstjóri Reita og Viðar Þorkelsson, forstjóri Valitor, handsala …
Guðjón Auðunsson, forstjóri Reita og Viðar Þorkelsson, forstjóri Valitor, handsala samkomulagið.
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK