Vodafone semur um not á nýjum sæstreng

AFP

Vodafone (Fjarskipti hf.) og Emerald Networks hafa ákveðið að semja um afnot Vodafone af gagnaflutningsstreng sem ráðgert er að leggja til Íslands.

Emerald Networks hefur á undanförnum misserum undirbúið lagningu sæstrengs frá Bandaríkjunum til Evrópu og lagningu hliðarleggs til Íslands.

Fyrirtækið hefur boðið Vodafone aðgang að strengnum og stefna málsaðilar að undirritun samnings þar um innan 45 daga. Frekari upplýsingar verða veittar þegar niðurstaðan liggur fyrir, að því er segir í tilkynningu frá Vodafone.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK