Fjarskiptafyrirtækið Hringdu hefur samið við fyrirtækið Greenland Connect um netsamband til Norður-Ameríku gegnum sæstreng fyrirtækisins. Með þessu mun Hringdu tvöfalda erlent útlandasamband sitt. Í tilkynningu frá félaginu gagnrýnir framkvæmdastjóri Hringdu sæstrengjafyrirtækið Farice, sem er eini tengiliður landsins við meginland Evrópu, fyrir mismunun á verði eftir því hver sé kaupandinn.
Játvarður J. Ingvarsson, framkvæmdastjóri Hringdu, segir að með fjölgun viðskiptavina hafi þurft að stækka útlandagáttina. „Við höfum frá því í lok síðasta árs unnið að því að ljúka samningaviðræðum um stækkun útlandasambandsins á sem skemmstum tíma. Verðið sem Farice býður er hreinlega þannig að ekki væri unnt að bjóða neytendum upp á þær verðbreytingar sem þyrftu að eiga sér stað ef þeirra þjónusta yrði fyrir valinu í þessari stækkun.“
Hann segir mismunun eiga sér stað eftir því hvort gagnamagn sé keypt fyrir netþjónustuaðila eða gangaver. „Greenland Connect var fýsilegasti kosturinn, þar sem að þeir bjóða hliðstæð verð á útlandasambandi til gagnavera og fjarskiptafyrirtækja á Íslandi, andstætt Farice.“