Umræða um leigufélög er á villigötum, en mikið hefur verið rætt um neikvæð áhrif innkomu fagfjárfesta á fasteignamarkaðinn í kjölfar frétta um að fagfjárfestarsjóður (Gamma Centrum) á vegum rekstrarfélagins Gamma hafi keypt rúmlega 100 íbúðir í miðborginni og nálægum svæðum. Þetta kemur fram í Hagsjá hagfræðideildar Landsbankans, en þar segir að engin merki séu um óeðlilega þróun í miðborginni, en leiguverð hefur meðal annars hækkað jafn mikið eða meira í austurbænum og Kópavogi.
Segir hagfræðideildin að þegar litið sé til raunverulegs leigukostnaðar komi þó í ljós að leiga sé töluvert hærri í miðborginni en annars staðar. „Þetta kemur ekki á óvart miðað við fjölda skóla og aðra þjónustu þar sem fólk vill búa í nánd við. Sé litið á 2ja herbergja íbúðir var leiguverð í miðbænum tæplega 2.000 krónur á fermetra á fyrstu tveim mánuðum þessa árs. Leiguverð í austurborginni var að jafnaði 6% lægra frá árinu 2011 en í miðborginni og verð í Kópavogi að jafnaði um 10% lægra.“
Samkvæmt samantekt í Hagsjánni kemur leiguverð í Sjálandi í Garðabæ næst á eftir miðbænum, en þar á eftir koma Melar, Hagar og Seltjarnarnesið.