Stjórnarkreppa ríkir nú í Portúgal, en í gær sagði utanríkisráðherra landsins, Paulo Portas, af sér eftir að fjármálaráðherrann Vitor Gaspar sagði óvænt af sér deginum áður. AFP-fréttaveitan segir að talið sé líklegt að ráðherrar landbúnaðar- og félagsmála séu einnig líklegir til að segja af sér á næstunni.
Í kjölfar þessara frétta hefur hlutabréfamarkaðurinn lækkað mikið, en PSI-20 vísitalan fór niður um 5,31% í dag. Þá hækkaði ávöxtunarkrafa á 10 ára ríkisskuldabréf og fóru þau yfir 8% í fyrsta sinn síðan í nóvember.
Fréttirnar smituðu út frá sér á aðra markaði í Evrópu og voru allar tölur rauðar í lok dagsins á stærstu mörkuðum álfunnar.
Þessi tíðindi gætu haft áhrif á 78 milljarða evra alþjóðlegan björgunarpakka sem ríkisstjórn Pedro Passo Coelho fékk árið 2011.
Haft er eftir aðalhagfræðingi Saxo-bankans, Steen Jakobsen, að hann telji líklegt að ríkisstjórnin falli á næstu tveimur sólarhringum og að Portúgal þurfi á nýjum björgunarpakka að halda á næstu 6 mánuðum.