Bjarni Þór Sigurðsson hefur verið ráðinn í starf forstöðumanns viðskiptasviðs Kortaþjónustunnar.
Kortaþjónustan hf. býður upp á greiðsluþjónustulausnir. Kortaþjónustan var fyrst íslenskra fyrirtækja til að fá vottun samkvæmt alþjóðlega öryggisstaðlinum PCI-DSS.
Bjarni Þór hefur á undanförnum árum starfað sem sölustjóri og forstöðumaður hjá EJS og Advania en einnig hefur hann unnið hjá fyrirtækjum á borð við LS Retail og Microsoft. Hann er með BA próf í íslenskum bókmenntum og kennslufræði frá HÍ. Bjarni Þór er giftur Sigrúnu Theodórsdóttur garðyrkjufræðingi og eiga þau 2 börn.