Matsfyrirtækið Fitch athugar nú hvort lækka eigi lánshæfiseinkunn Bandaríkjanna eftir að ekki tókst að ná samkomulagi á þinginu um lækkun skuldaþaks ríkisins.
Fitch hefur sett lánshæfiseinkunn bandaríska ríkisins, sem nú er AAA, í „neikvæða vöktun“ vegna þess möguleika að samkomulag náist ekki fyrir vikulok og að ríkið geti ekki staðið við skuldbindingar sínar.
Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, hafnaði í dag tillögu fulltrúadeildar Bandaríkjaþings sem fól í sér framlengingu á skuldaþaki og opnun ríkisstofnana sem lokað var um mánaðamótin.