Allri áhöfn Brimness sagt upp

Brimnes RE 27.
Brimnes RE 27. mbl.is/Alfons

Brim hf. hefur sagt upp öllum skipverjum á frystitogaranum Brimnesi RE 27, sem er 2.848 tonna frystitogari, gerður út  frá Reykjavík.  

Brimnesið er nýjasti og stærsti frystitogari Íslendinga og var smíðaður í Noregi árið 2003. 40 manns eru í áhöfn skipsins. Árið 2013 var aflaverðmæti skipsins 2.680 milljónir króna og laun og launategnd gjöld 1.028 milljónir króna.   

Rekstrargrundvöllur frystitogara hefur breyst mikið á undanförnum árum „en með gríðarlegri hækkun veiðigjalda á síðustu árum hefur rekstrargrundvöllur þessara skipa brostið að mati Brims hf.“ segir í fréttatilkynningu frá Brimi.  

Á síðasta ári voru veiðigjöld Brimness um það bil 10% af aflaverðmæti skipsins. „Þegar aðstöðugjald var lagt niður á Íslandi þá var það um það bil 1,5% af veltu fyrirtækja og þótti hátt þá. Brim hf. mun leita að verkefnum fyrir skipið erlendis þar sem félagið sér ekki breytingar í vændum hér á landi í rekstrarumhverfi þessara skipa,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK