SÍA II, framtakssjóður í rekstri Stefnis, hefur ásamt hópi fjárfesta gengið frá kaupum á hluta af innlendri starfsemi Norvik í gegnum Festi hf., sem verður nýtt móðurfélag hinna seldu félaga. Með kaupunum tekur Festi yfir rekstur Kaupáss, sem rekur matvöruverslanir undir merkjum Krónunnar, Nóatúns og Kjarvals, Elko, Intersport, auglýsingastofunnar Expo og vöruhótelsins Bakkans. Þá hefur Festi jafnframt gengið frá kaupum á hluta af fasteignasafni Smáragarðs.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.
Festi hf. er í eigu SF V slhf. og eru hluthafar um 30 talsins. SÍA II er stærsti einstaki hluthafi félagsins með um 27% hlut. Lífeyrissjóðir eru með um 32% hlut, tryggingafélög og sjóðir 15% og einkafjárfestar um 26%. Nýja stjórn Festar skipa Arnar Ragnarsson, Guðjón Karl Reynisson, Helga Hlín Hákonardóttir, Þóranna Jónsdóttir og Hreggviður Jónsson, sem er formaður stjórnar. Þá hefur Jón Björnsson verið ráðinn forstjóri Festar og mun taka samstundis til starfa. Jón var áður forstjóri ORF Líftækni en hann hefur meðal annars gegnt starfi forstjóra Magasin du Nord og Haga hf.
Arctica Finance, BBA Legal og Deloitte veittu kaupendum ráðgjöf við kaupin en Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka, Logos og KPMG voru ráðgjafar Norvik við söluna.
Hreggviður Jónsson, stjórnarformaður Festar, segir í fréttatilkynningu að breiður hópur hluthafa komi að kaupunum og mörg tækifæri skapist í að þróa áfram reksturinn.
Jón Helgi Guðmundsson, forstjóri Norvik, segir í fréttatilkynningu:
„Það er mat okkar fjölskyldunnar að nú sé komið að kynslóðaskiptum í þeirri starfsemi sem við höfum byggt upp og því tímabært fyrir nýja eigendur að koma að borðinu. Eins og gefur að skilja er okkur ekki sama hverjir taka við keflinu á þessum tímamótum eða hvernig á því verður haldið og það skiptir okkur miklu að nýir eigendur deila að miklu leyti okkar sýn um uppbyggingu fyrirtækisins. Í kjölfar þessara viðskipta munum við einbeita okkur að rekstri Byko og tengdra fasteigna, auk erlendrar starfsemi. Á þessum tímamótum viljum við einnig færa því starfsfólki sem hefur starfað fyrir okkur í gegnum tíðina þakkir fyrir þeirra vel unnu störf.“