Landsvirkjun tilkynnti í dag að fyrirtækið hefur undirritað raforkusölusamning við United Silicon hf. Samkvæmt samningnum mun Landsvirkjun útvega rafmagn fyrir kísilmálmverksmiðju sem United Silicon áformar að reisa í Helguvík á Suðurnesjum. Gert er ráð fyrir að verksmiðjan hefji starfsemi á fyrri helmingi ársins 2016 og noti 35 MW af afli.
„Við erum viss um að kísilmálmiðnaður muni dafna á Íslandi til langs tíma þar sem raforka er unnin úr endurnýjanlegum orkugjöfum. Aðstæður henta vel til að orkufrekur iðnaður geti hér náð samkeppnisforskoti í Evrópu og á alþjóðlega vísu,“ segir Hörður Arnarson forstjóri Landsvirkjunar í tilkynningu.
Samningurinn er gerður með fyrirvörum sem þurfa að vera uppfylltir fyrir maímánuð.
United Silicon hf. er nýtt félag stofnað af hópi aðila í evrópska kísilmálmiðnaðinum sem á frumkvæði að því að setja upp nýja kísilmálmverksmiðju til að mæta vaxandi eftirspurn viðskiptavina sinna í Evrópu.
Eftir að ákvörðun um að setja upp verksmiðju á Íslandi var tekin, keypti félagið allt hlutafé í Stakksbraut 9 ehf. sem á lóð í Helguvík og umhverfismat fyrir reksturinn, samþykkt af Skipulagsstofnun í maí 2013. United Silicon hf. stígur með þessu móti inn í fullþróað verkefni og gerir raforkusamningur við Landsvirkjun félaginu kleift að hefja byggingu verksmiðjunnar í sumar.