12 milljarða fjárfestingasamningur

Frá undirritun samningsins. Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra ásamt …
Frá undirritun samningsins. Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra ásamt forsvarsmönnum United Silicon hf.

Í dag undirritaði Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra fjárfestingar-samning við United Silicon hf. vegna fyrirhugaðs kísilvers félagsins í Helguvík á Reykjanesi. Um er að ræða nýfjárfestingarverkefni sem hljóðar upp á 74 milljónir evra, tæplega 12 milljarða íslenskra króna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu.

Áætluð ársframleiðsla kísilversins er 21.000 tonn af kísli og 7.500 tonn af kísilryki. Gert er ráð fyrir að 60 starfsmenn komi til með að vinna við verksmiðjuna og starfsmenn við byggingu hennar verði allt að 200. Miðað er við að framleiðsla hefjist á árinu 2016 og að fullum afköstum verði náð 2017. 

Fjárfestingarsamningurinn er gerður með fyrirvara um heimild Alþingis, sem aflað verður með sérlögum, og samþykki Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA). Samkvæmt samningnum eru veittar nauðsynlegar ívilnanir til verkefnisins sem felast fyrst og fremst í 15% tekjuskatti og 50% afslætti af almennu tryggingargjaldi í 10 ár frá því að gjaldskylda myndast en að hámarki í 13 ár frá því samningurinn tekur gildi. Að auki veitir sveitarfélagið Reykjanesbær verkefninu ákveðnar ívilnanir til jafn langs tíma.
<!--[endif]-->

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK