Thorsil ehf. semur um lóð í Helguvík

1) Við undirritun lóðarsamningsins: Hákon Björnsson (t.v.) og Pétur Jóhannsson …
1) Við undirritun lóðarsamningsins: Hákon Björnsson (t.v.) og Pétur Jóhannsson hafnarstjóri undirrituðu samninginn. Að baki þeim standa f.v. Eyþór Arnalds, Árni Sigfússon bæjarstjóri og Einar Magnússon, formaður stjórnar Reykjaneshafnar.

Thorsil ehf. og Reykjaneshöfn undirrituðu fyrr í dag samning um 160 þúsund fermetra iðnaðarlóð í Helguvík í Reykjanesbæ, þar sem Thorsil áformar að reisa kísilmálmverksmiðju.

Verksmiðjan mun framleiða um 54.000 tonn af kílmálmi á ári og nota til þess 87 MW af raforku á klukkustund eða um 730 GWh á ári. Um 130 starfsmenn munu starfa hjá verksmiðjunni sem áætlað er að hefji framleiðslu í lok árs 2016, segir í fréttatilkynningu.

„Lóðin í Helguvík, sem Thorsil hefur samið um leigu á, hefur marga kosti fyrir rekstur kísilmálmverksmiðju,“ er haft eftir Hákoni Björnssyni, framkvæmdastjóra Thorsil. „Á lóðinni er hentugt byggingarland og hún er í aðeins um 450 metra fjarlægð frá hafnarbakka í Helguvíkurhöfn. Fyrir hendi er góð höfn sem er fyrirtækinu mikilvæg vegna flutninga á hráefnum og afurðum til og frá verksmiðjunni. Með þessari staðsetningu mun verksmiðjan ennfremur njóta þess að vera nærri stórum vinnumarkaði með nægu hæfu starfsfólki fyrir okkar starfsemi.“ 

Fyrir hönd samningsaðila undirrituðu lóðarsamninginn Hákon Björnsson, framkvæmdastjóri Thorsils, og Pétur Jóhannsson, hafnarstjóri Reykjaneshafnar. Vottar voru Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, og Eyþór Arnalds, stjórnarmaður í Thorsil.

2) Samningsaðilar staddir á lóð Thorsils í Helguvík, þar sem …
2) Samningsaðilar staddir á lóð Thorsils í Helguvík, þar sem Thorsil mun reisa verksmiðju sína. Hákon Björnsson (t.v.) og Pétur Jóhannsson. Í fjarska er Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK