Smiðshöggið rekið á samning við Kína

Íslenski og kínverski fáninn.
Íslenski og kínverski fáninn. mbl.is/Ómar Óskarsson

Lagalegri málsmeðferð fríverslunarsamnings Íslands og Kína hefur nú verið lokið og mun samningurinn taka gildi 1. júlí. „Það er afar ánægjulegt að geta nú í sumar rekið smiðshöggið á þennan mikilvæga samning sem ég vona að verði íslenskum útflutningsaðilum mikil lyftistöng,“ er haft eftir Gunnari Braga Sveinssyni utanríkisráðherra í fréttatilkynningu, um samninginn sem felur í sér afnám tolla á öllum helstu útflutningsvörum Íslands.

„Mikil tækifæri liggja í þessum samningi og höfum við orðið vör við gríðarlegan áhuga íslenskra og kínverskra fyrirtækja á að efna til nýrra samstarfsverkefna. Hér sannast enn á ný hve vel Íslendingar standa vel að vígi til að sækja á ný mið og nýta þá möguleika sem felast í hnattvæðingunni,“ segir utanríkisráðherra af þessu tilefni. Með þessum áfanga verður Ísland fyrsta Evrópuríkið sem hrindir fríverslunarsamningi við Kína í framkvæmd og gæti samningurinn veitt íslenskum fyrirtækjum umtalsvert forskot á hinum ört vaxandi Kínamarkaði, segir í fréttatilkynningu ráðuneytisins.

Í tilefni af gildistöku samningsins mun Gunnar Bragi heimsækja Kína í lok júnímánaðar og leiða viðskiptasendinefnd sem skipulögð er á vegum Íslandsstofu. Af sama tilefni verður nýtt húsnæði fyrir sendiráð Íslands formlega opnað en á síðasta ári buðu eistnesk stjórnvöld Íslendingum að samnýta nýja sendiráðsbyggingu þeirra í Peking.

Ítarefni um fríverslunarsamning Íslands og Kína

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK