Ekkert fékkst upp í 66,7 milljarða kröfur í þrotabú Vetrarmýri ehf., en félagið hét áður Smáey ehf. og var í eigu Magnúsar Kristinssonar, útgerðarmanns í Vestmannaeyjum. Félagið átti meðal annars Bergey ehf., sem var eigandi Toyota umboðsins, Yamaha á Íslandi, Gísla Jónssonar ehf og var til viðbótar í ábyrgð fyrir önnur fyrirtæki Magnúsar.
Smáey var úrskurðað gjaldþrota 11. Október 2013, en samkvæmt auglýsingu í Lögbirtingablaðinu voru lýstar kröfur í búið 66.722.823.138 krónur. Ekkert fékkst til greiðslu úr búinu.
Magnús var mjög umsvifamikill í íslensku viðskiptalífi fyrir hrun og átti meðal annars Hertz bílaleiguna, Sólningu, Motormax, útgerðina Berg Huginn og Pizza Pizza, sem var móðurfélag Dominos. Í ágúst á síðasta ári var Bergur Huginn seldur sem hluti af skuldauppgjöri Magnúsar við Landsbankann, en í framhaldinu sakaði Magnús bankann um grófa markaðsmisnotkun sem hafi kostað hann félagið.
Dótturfélag Smáeyjar, Bergey, varð gjaldþrota árið 2012, en engar eignir fundust upp í kröfur sem voru einn milljarður.