Kanslari Þýskalands, Angela Merkel, og forseti Brasilíu, Dilma Rousseff hittuast á fundi í dag í Brasilíu þar sem rætt var um að auka viðskipti milli landanna tveggja. En knattspyrna var líka í sviðsljósinu hjá þeim tveimur en Merkel er í stuttri heimsókn til Brasilíu til að fylgjast með fyrsta leik Þýskalands á HM síðar í dag.
Þjóðverjar mæta Portúgölum í Salvador klukkan fjögur í dag.