Notendur sjónvarps- og kvikmyndaþjónustunnar Netflix eru nú orðnir yfir 50 milljónir í fjörutíu löndum. Afkoma fyrirtækisins er nú yfir væntingum.
Hlutabréf í Netflix höfðu hækkað nokkuð í verði við lokun markaða í gær í kjölfar uppgjörs sem sýndi hagnað á öðrum ársfjórðungi. Hefur hagnaðurinn meira en tvöfaldast frá því á sama tímabili í fyrra.
The Los Gatos, fyrirtækið sem rekur Netflix, segir að hagnaður á 2. ársfjórðungi hafi verið 71 milljón dala, rúmlega 8 milljarðar króna, en var 29,5 milljónir dala á sama tímabili í fyrra. Heildartekjur Netflix voru 1,34 milljarðar bandaríkjadala, 154 milljarðar íslenskra króna.
„Fimmtán árum eftir að áskriftarþjónusta okkar hófst erum við með yfir 50 milljón áskrifendur í 40 löndum,“ segir forstjóri Netflix, Reed Hastings.
Sumar sjónvarpsþáttaraðir fara nú beint á Netflix áður en þær eru sýndar í sjónvarpi. Þannig var því m.a. farið með Orange is the New Black. Varð það til þess að margir nýir áskrifendur bættust í hópinn.
Í september verður Netflix í boði í Þýskalandi, Frakklandi, Austurríki, Sviss, Belgíu og Lúxemborg.
Netflix hóf að streyma efni árið 2007 og er nú orðið leiðandi á sínu sviði. Í hverjum mánuði streymir fyrirtækið yfir milljarði klukkustunda af efni til notenda sinna.
Allt að tuttugu þúsund íslensk heimili eru með aðgang að efnisveitum á borð við Netflix þrátt fyrir að þær hafi ekki formlega veitt aðgang að sínu efni á íslensku landsvæði. Sökum þessarar stóru markaðshlutdeildar sjá þær engan hag í því að laga þjónustu sína að íslenskum notendum og munu aldrei gera það. Þetta kemur fram í skýrslu rýnihóps á vegum mennta- og menningarmálaráðherra um greiningu á hindrunum fyrir streymiþjónustu.
Frétt mbl.is: Netflix líklega aldrei til Íslands