Hagnaður Apple jókst á öðrum ársfjórðungi. Sala á iPhone, sérstaklega í Kína, er helsta skýringin á góðu uppgjöri fyrirtækisins nú. Slæmu fréttirnar eru hins vegar þær að sala á iPad-spjaldtölvum hefur dregist saman.
Tekjur Apple voru 37,4 milljarðar bandaríkjadala, 4.317 milljarðar króna, á ársfjórðungnum, 11,6% meira en á sama tíma í fyrra. Hagnaður fyrirtækisins var 7,7 milljarðar dala, eða 889 milljarðar króna.
Á öðrum ársfjórðungi seldi Apple 35,2 milljónir iPhone, 13% fleiri en á sama tímabili á síðasta ári.