Kristrún Heimisdóttir lætur nú af störfum sem framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins samkvæmt samkomulagi við stjórn samtakanna.
Kristrún tók við sem framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins af Orra Haukssyni, forstjóra Símans, í nóvembermánuði í fyrra.
„Ég vil fyrir hönd stjórnar Samtaka iðnaðarins þakka Kristrúnu fyrir góð störf hennar í þágu SI og óska henni góðs gengis í framtíðinni,“ er haft eftir Guðrúnu Hafsteinsdóttur, formanni Samtaka iðnaðarins, í fréttatilkynningu.