Lögmannsstofan Lögmenn Hafnarfirði hefur skipt um eigendur, en stofan var stofnuð árið 1984. Nýir eigendur Lögmanna Hafnarfirði eru Gunnar Sv. Friðriksson hdl. og Þuríður B. Sigurjónsdóttir hdl.
Fyrri eigendur hennar voru lögmennirnir Ólafur heitinn Rafnsson, Bjarni S. Ásgeirsson og Ingi H. Sigurðsson. Bjarni og Ingi munu enn um sinn starfa á stofunni, að því er fram kemur í tilkynningu.
Nýir eigendur Lögmanna Hafnarfirði munu áfram sinna lögmannsþjónustu fyrir gamla viðskiptavini og mun stofan hér eftir sem hingað til veita einstaklingum, fyrirtækjum og stofnunum þjónustu.