Tæknirisinn Apple hefur boðað til kynningarfundar þann 9. september. Ekki er vitað hvert efni fundarins er, en búast má við að iPhone 6 verði kynntur á fundinum. Nýjar útgáfur af iPhone hafa gjarnan verið kynntar í september.
Á boðskorti Apple segir meira að segja: „Við vildum að við gætum sagt ykkur meira.“