Fastlega er búist við að frumútboð hlutabréfa í kínverska tæknifyrirtækinu Alibaba í Bandaríkjunum í dag muni slá heimsmet og verða það stærsta í sögunni. Gert er ráð fyrir að útboð Alibaba verði um 25 milljarða dollara virði og gefi fyrirtækinu markaðsverðmæti upp á um 168 milljarða dollara. Af þessu tilefni er ekki út vegi að líta yfir tíu stærstu útboðin hingað til.
- AgBank, The Agricultural Bank of China, eða landbúnaðarbanki Kína, safnaði 22,1 milljarði dollara í útboði sínu í Hong Kong og Sjanghæ árið 2010.
- ICBC, annað kínverskt fjármálafyrirtæki, Industrial and Commercial Bank of China eða Iðnaðar- og viðskiptabanki Kína, safnaði 21,9 milljörðum dollara í útboði sínu í Hong Kong og Kína árið 2006.
- AIA Group, sem er asískt útibú bandaríska tryggingafélagsins AIG, safnaði 20,4 milljörðum dollara árið 2010 í hlutabréfaútboði í Hong Kong.
- Visa Inc. Bandaríska kortafyrirtækið safnaði 19,6 milljörðum dollara árið 2008 í útboði félagsins í New York.
- NTT DoCoMo, sem er japanskt símfyrirtæki, safnaði 18,3 milljörðum dollara í útboði í Tókýó árið 1998.
- General Motors. Bandaríski bílaframleiðandinn náði sér aftur á strik eftir gjaldþrot með stóru útboði í New York og Toronto árið 2010 og safnaði 18,1 milljarði dollara.
- Enel, ítalskt orkufyrirtæki safnaði 17,4 milljörðum dollara árið 1999 í útboði í Mílanó og New York.
- Facebook. Þótt Facebook sé í áttunda sæti á félagið skráningarmet tæknifyrirtækja, sem sett var í maí 2012 þegar 16 milljarðar dollara söfnuðust í útboði þeirra í New York. Það met mun Alibaba þó líklega hrifsa til sín í dag.
- NTT, japanskt fjarskiptafyrirtæki sem áður var í ríkiseigu safnaði 13,6 milljörðum dollara í útboði félagsins í Tókýó árið 1986.
- Deutsche Telekom, útboð þýska fjarskiptafyrirtækisins í Frankfurt, New York og Tókýó safnaði 13 milljörðum dollara.