Arctic Oddi selur bolfiskvinnslu

Flateyri.
Flateyri. mbl.is/Sigurður Bogi

Arctic Oddi mun aðeins halda eftir kjarnastarfsemi sinni á Flateyri sem er vinnsla á eldisafurðum. Verður sú framleiðsla árstíðabundin á meðan verið er að byggja upp og tryggja frekari eldisleyfi. Félagið leitar því nú eftir kaupendum eða samstarfsaðilum á bolfiskvinnslu félagsins.

Arctic Oddi hefur stundað fiskvinnslu á Flateyri undanfarin þrjú ár þar sem bæði hefur verið vinnsla á hefðbundnum sjávarafla og eldisafurðum og hafa starfsmenn að jafnaði verið um þrjátíu. Fyrirtækið hefur á undanförnum árum byggt upp sérhæfða eldisvinnslu í samstarfi við systurfélag sitt, Dýrfisk. Dýrfiskur hefur í dag leyfi til þess að ala allt að tvö þúsund tonn af regnbogasilungi og laxi í Dýrafirði en hægt hefur gengið að fá aukningu eldisleyfa sem er forsenda þess að byggja þar upp arðbæran rekstur. Eldisferlið sjálft frá klaki til fullvinnslu afurða er hátt í þrjú ár og því er mikilvægt að uppbygging og staðfesting eldisleyfa haldist í hendur svo hægt sé að tryggja atvinnuöryggi og uppbyggingu starfseminnar.

Samhliða árstíðabundinni vinnslu á eldisfiski hefur Arctic Oddi haldið úti heilsársstarfsemi með vinnslu á þorski, steinbít, makríl og fleiri sjávarafurðum. Sú vinnsla hefur hingað til verið rekin með tapi og því hefur verið tekin ákvörðun um að hætta vinnslu á hefðbundnum sjávarafla.

Arctic Oddi mun því aðeins halda eftir kjarnastarfseminni sem er vinnsla á eldisafurðum. Verður sú framleiðsla árstíðabundin á meðan verið er að byggja upp og tryggja frekari eldisleyfi. Félagið leitar því nú eftir kaupendum eða samstarfsaðilum á bolfiskvinnslu félagsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK